Steinbítur í kókoskarrý og engifer

Kókosmjólk og karrý fara einstaklega vel saman. Þegar svo í sósuna er kominn hágæða íslenskur fiskur, smávegis af grænmeti og góð hrísgrjón, er búið að útbúa mjög ljúffengan fiskrétt með austurlenski ívafi. Við bendum á steinbít í þennan holla og góða rétt, en auðvitað má nota annan fisk, ef fólk kýs það.
Innihald:
800g steinbítsflök í fjórum jöfnum bitum, roðlaus og beinlaus
Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
4 tsk. ólívuolía
3 vorlaukar skornir í 2 sentímetra bita
1 msk. ferskur marinn engifer
1 tsk. túrmerik duft
1 miðlungsstór gulrót skorin í strimla
1 dós kókosmjólk um 4 dl
1 msk rautt karrýmauk eða meira eftir smekk (einnig má nota gott karrýduft t.d. frá Balí)
¼ bolli ferskur kóreander til skrauts
Aðferð:
Hitið ofninn í 80 gráður.
Kryddið fiskinn með salti og pipar. Hitið 2 msk. af ólífuolíu og steikið fiskinn á báðum hliðum þannig að hann verði fallega gullinn. Færið hann svo yfir á eldfast form og haldið honum heitum í ofninum.
Setjið afganginn af olíunni á pönnuna. Setjið vorlaukinn á pönnuna og mýkið hann í 2-3 mínútur. Bætið þá engifer og túrmerik útá og hrærið í 1 mínútu eða svo. Bætið þá gulrótunum út á og látið krauma uns þær eru orðnar mjúkar. Færið grænmetið yfir í skál og lokið henni til að halda því heitu.
Hellið nú kókosmjólkinni út á pönnuna og hrærið karrýmaukinu saman við. Látið vökvann sjóða aðeins niður og bætið við karrý eftir smekk. Einnig má nota gott karrýduft í sósuna. Bætið þá grænmetinu út á pönnuna
Færið fiskinn nú upp á fjóra diska og jafnið sósunni yfir þá. Dreifið loks smávegir af kóreander yfir og berið réttinn fram með soðnum hrísgrjónum.