Kuldalegt á æfingu

111
Deila:

Áhöfnin á varðskipinu Tý er nú við eftirlit á Íslandsmiðum. Æfingar skipa stóran sess í störfum áhafnarinnar og í vikunni fór fram reykköfunaræfing um borð í Sigurborgu gömlu sem liggur í Grundarfjarðarhöfn. Eins og myndin sýnir var heldur kuldalegt um að litast í Grundarfirði. Æfingin er mikilvæg ef áhöfnin þarf að bregðast við eldi um borð í skipi og sérstaklega þýðingarmikið að rifja upp réttu handtökin reglulega. Þá var sömuleiðis æft með hafnsögubáti Faxaflóahafna í síðustu viku við upphaf ferðarinnar.

Deila: