Samþykkja sérreglur við úthlutun byggðakvóta

Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps hefur samþykkt að sérreglur fyrir Tálknafjörð varðandi úthlutun byggðakvóta fyrir 2020/2021 verði með sama hætti og gert var fyrir fiskveiðiárið 2019-2020.
Samkvæmt þeim reglum skal 50% kvótans skipt jafnt á þá báta sem landað hafa sínum afla fiskveiðiárið 2018/2019 í Tálknafirði og uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar. Hin 50% kvótans skal skipt hlutfallslega, miðað við allan landaðan botnfiskafla til vinnslu í Vestur-Barðastrandarsýslu á tímabilinu 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.
Tveir sveitarstjórnarmenn Bjarnveig Guðbrandsdóttir og Lilja Magnúsdóttir lýstu vanhæfi sínu í málinu. Samkvæmt fundargerð samþykkti sveitarstjórn að þær myndu víkja
við umfjöllun og afgreiðslu þessa mál og varafulltrúarnir Ingibjörg Jóna Nóadóttir og Jóhann Örn Hreiðarsson tóku sæti þeirra við afgreiðslu þessa máls.
Úthlutun síðasta fiskveiðiárs á 429 tonnum var samkvæmt því sem frá greinir á vef Fiskistofu:
Ferskur BA-103 | 22.148 |
Brynjar BA-338 | 28.660 |
Sæli BA-333 | 316.530 |
Garri BA-90 | 58.592 |
Gammur BA-82 | 3.070 |
Gjóla BA-705 | 15.482 |
Jói BA-4 | 2.586 |
Mynd og frétt af bb.is