Togararnir landa góðum afla

95
Deila:

Ísfisktogararnir hafa verið að fá ágætan afla austur af landinu. Bergey VE landaði í Neskaupstað í gær og Vestmannaey VE landaði þar fullfermi í dag. Þá kom Gullver NS til Seyðisfjarðar í morgun með fullfermi. Egill Guðni Guðnason, stýrimaður á Vestmannaey, sagði að vel hafi gengið að fiska.

„Við fengum þennan afla á Glettinganesgrunni og síðan á Breiðdalsgrunni og út í Hvalbakshalli. Þetta er mest þorskur en einnig dálítið af ýsu. Það kom gott skot í Hvalbakshallinu og þar var mokveiði í tæpan sólarhring. Þetta var hinn þægilegasti túr miðað við veðravítið í síðasta túr,“ segir Egill Guðni í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Þórhallur Jónsson, skipstjóri á Gullver hefur svipaða sögu að segja. „Við byrjuðum á Glettinganesflakinu í ýsukroppi en fengum síðan þorsk suður á Litladýpi og á Breiðdalsgrunni. Túrinn tók um þrjá og hálfan sólarhring. Það var góður þorskafli þarna suður frá en þegar við fórum hafði veiðin dottið niður. Það munaði miklu að við fengum gott veður í túrnum, það var einungis smá kaldi eina nóttina en annars fínt veður,“segir Þórhallur.

 

Deila: