Segist vera með stöðu sakbornings

222
Deila:

Sveinn Geir Arnarson, skipstjóri togarans Júlíusar Geirmundssonar, segist vera með stöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á hópsmiti Covid-19 sem kom upp um borð í togaranum í síðasta mánuði. Hann sakar stéttarfélag sitt og áhafnarinnar um að ætla að halda „sýndarréttarhöld“ yfir sér með sjóprófi. Þetta kemur fram á visir.is Þar segir ennfremur:

Greint var frá því á föstudag að Héraðsdómur Reykjaness hefði ákveðið að sjópróf skuli fara fram vegna hópsýkingarinnar um borð í togaranum. Tuttugu og tveir úr tuttugu og fimm manna áhöfn greindist smitaður eða með mótefni fyrir kórónuveirunni. Skipið hélt áfram veiðum í þrjá vikur þrátt fyrir að skipverjar hefðu veikst snemma í túrnum.

Í yfirlýsingu frá Sveini Geir, sem hefur að öðru leyti ekki viljað tjá sig um atburðina um borð, kemur fram að hann hafi stöðu sakbornings. Hann hafi veitt lögreglu allar upplýsingar sem hún hafi óskað eftir. Lögregla hafi þannig undir höndum afrit af skipsdagbók og þá hafi hann gefið skýrslu í málinu.

„Bíð ég nú sem sakaður maður eftir niðurstöðu lögreglurannsóknar, en ég vænti þess að þar muni ég njóta sannmælis og réttlátrar málsmeðferðar eins og lög bjóða,“ segir í yfirlýsingunni sem lögmaður Sveins Geirs sendi fyrir hönd hans til Vísis.

Segir félögin vilja auðmýkja sig opinberlega

Skipstjórinn fer hörðum orðum um verkalýðsfélag sitt og áhafnarinnar en þau kærðu Hraðfrystihúsið Gunnvör vegna meðferðar þess á áhöfn Júlíusar Geirmundssonar og kröfðust sjóprófs. Verkalýðsfélag Vestfjarða, Félag skipstjórnarmanna, Sjómannafélag Íslands, Sjómannasamband Íslands og VM – félag vélstjóra og málmtæknimanna standa að kærunni.

Sakar Sveinn Geir félögin um að ætla að halda „opinber réttarhöld“ yfir sér og „opinberlega smána“ sig.

„Ekki þarf að spyrja að því hvernig sá dómur verður, enda hafa þau þegar fellt hann. Ég frábið mér sýndarréttarhöld og opinbera auðmýkingu í boði stéttarfélags míns og mun ekki taka þátt í þeim,“ segir Sveinn Geir í yfirlýsingu sinni.

Segist hann tilbúinn að ræða við félögin um leiðir til þess að bæta öryggi sjómanna ef markmiðið sé samvinna en ekki að „smána og niðurlægja opinberlega“.

Þungbært að sitja undir ásökunum

Hafnar skipstjórinn því í yfirlýsingu sinni að hann hafi stofnað áhöfninni í hættu viljandi eða neytt veika menn til að vinna. Honum hafi verið þungbært að komast að því að smitin sem komu upp um borð hafi verið kórónuveirusmit.

Þá sé honum þungbært að sitja undir ásökunum og kærum.

„En ég mun ekki víkja mér undan ábyrgð í málinu og ég get gert mistök eins og aðrir menn,“ segir Sveinn Geir sem ætlar ekki að tjá sig frekar á meðan lögregla rannsakar málið.

Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar, sagði að réttum verkferlum hefði ekki verið fylgt þegar veikindin komu upp um borð í togaranum í síðasta mánuði.

„Ég get ekki útskýrt það. Það er eiginlega ekki hægt að útskýra það. Það hefði verið rétt að fara í land en þetta var bara svona,“ sagði Einar Valur þegar hann var spurður út í fréttir um að skipstjórinn hefði sett skipverja í einangrun í þrjá daga og jafnvel saman í káetu.

 

 

Deila: