Nýtt vinnslukerfi frá Skaginn 3X eykur framleiðslugetu LVF um 70%

118
Deila:

Nýlega undirrituðu LVF og Skaginn 3X samning um nýtt vinnslukerfi LVF sem auka mun
sjálfvirkni og vinnslugetu. Stefnt er að því að auka afköst vinnslunnar í allt að 400 tonn á
sólarhring sem er um 70% afkastaaukning frá því sem nú er. Nýja kerfið er hannað til að
framleiða hágæða vöru á sem hagkvæmastan hátt.
Frystihús LVF á Fáskrúðsfirði er sérhæft til vinnslu á uppsjávarfiski, loðnu, síld og makríl. Loðnan
er heilfryst á markaði í Austur-Evrópu og Asíu en einnig eru hrogn unnin fyrir sömu markaði.

Tímasetningin skiptir höfuðmáli
Þar sem uppsjávarvinnsla er háð viðkvæmum ytri þáttum eins og árstíðabundinni auðlind er
mikilvægt að ná að nýta hana á réttum tíma og með réttum aðferðum. Tæknilausnir Skagans 3X
eru því hannaðar til að viðhalda gæðum vörunnar og ná með því hámarksafrakstri í vinnslu. Með
þessum endurbótum verður fyrirtækið mun betur í stakk búið til þess að nýta auðlindina sem
best á næstu vertíðum.
Náið samstarf
„Það skiptir miklu máli að geta unnið svona náið með hönnuðum Skagans 3X eins og við höfum
gert í þessu verkefni,“ segir Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri LVF. „Sérfræðiþekking
þeirra og reynsla okkar hefur skilað sér í lausn sem mun bæði auka sjálfvirkni og bæta
framleiðslugetuna í uppsjávarfrystingunni hjá okkur.“
Aukin afköst og meiri sjálfvirkni
Uppsjávarkerfin frá Skaganum 3X eru afar skilvirk og hefur tæknin þjónað nokkrum stærstu
uppsjávarvinnslum í heimi. Nýja kerfið sem sett verður upp hjá LVF inniheldur pokakerfi, nýja
plötufrysta sem fara afar vel með vöruna og sjálfvirkt brettakerfi. Búnaðurinn verður tengdur
bæði vélum sem fyrir eru og nýjum búnaði frá öðrum framleiðendum, þar með töldum þjörkum
sem auka enn sjálfvirknina í frystihúsinu.
Sérfræðingar í heildarkerfum í uppsjávarvinnslu
Skaginn 3X hefur mikla reynslu í hönnun og uppsetningu á stórum heildarkerfum fyrir
uppsjávarvinnslu. Það tók því ekki langan tíma fyrir þrjá sérfræðinga fyrirtækisins að hanna
kerfið fyrir LVF. Þeir mættu austur, teiknuðu kerfið upp á staðnum og tæpum mánuði seinna var
samningur undirritaður.

Vinna hratt til að mæta þörfum viðskiptavinarins
„Við gripum boltann og unnum hratt og vel með Fáskrúðsfirðingum. Við höfum sett upp kerfi hjá
LVF áður og það er því ánægjulegt að geta unnið með þeim áfram og boðið lausnir sem henta
þeirra þörfum,“ segir Ingvar Vilhjálmsson – svæðissölustjóri Skagans 3X „LVF teymið var mjög vel
undirbúið þannig að það var auðvelt og fljótlegt fyrir okkur að hanna kerfið.“

FÁ myndinni eru frá vinstri: Þorri Magnússon – framleiðslustjóri (LVF), Friðrik Mar Guðmundsson –
framkvæmdastjóri (LVF), Ingvar Vilhjálmsson – svæðissölustjóri (Skaginn 3X), Steinþór Pétursson
– skrifstofustjóri (LVF), Einar Brandsson – söluhönnuður (Skaginn 3X), Rúnar Björn Reynisson –
vélahönnuður (Skaginn 3X).

Deila: