Dagurinn kostar 25 til 40 milljónir króna

232
Deila:

Borskipið Joides Resolution er væntanlegt til Reykjavíkur um næstu helgi til að sinna rannsóknarborunum á Reykjaneshrygg. Háskóli Íslands kemur að alþjóðlegum vísindaleiðangri skipsins, sem áætlað er að standi í sextíu daga. Frá þessu er greint á visir.is

Rannsaka á bergfræði Reykjaneshryggs 30 milljón ár aftur í tímann, setlagamyndun og þróun jarðhita. Leiðangurinn er einhver sá dýrasti á sviði hafsbotnsrannsókna sem ráðist hefur verið í á hafsvæðum við Ísland. Hver dagur kostar á milli 25 og 40 milljónir króna.

Leiðangurinn átti upphaflega að vera síðastliðið sumar en honum var þá frestað vegna covid-19 heimsfaraldursins. Venjulega eru um eða yfir eitthundrað manns um borð í skipinu í slíkum leiðöngrum, allt að 65 manns í áhöfn og allt að 50 vísinda- og tæknimenn. Vegna faraldursins verða mun færri á skipinu og engir vísindahópar. Leiðangursstjórinn, Leah LeVay, verður raunar eini vísindamaðurinn um borð.

„Borun á Reykjaneshrygg verður framkvæmd af tækniáhöfn skipsins,“ segir Bryndís Brandsdóttir, jarðeðlisfræðingur við Háskóla Íslands, sem heldur utan um verkefnið fyrir Íslands hönd.

Skipið var í dag við Azoreyjar eftir siglingu frá Höfðaborg í Suður-Afríku en þaðan liggur leið þess til Reykjavíkur. Samkvæmt vef Faxaflóahafna er gert ráð fyrir skipinu í höfn næstkomandi laugardag, 5. júní, og á það að leggjast að Skarfabakka í Sundahöfn klukkan 16. Brottför er síðan skráð þann 11. júní. Leiðangursstjórinn Leah LeVay áætlar þó að skipið komi til Reykjavíkur degi seinna, sunnudaginn 6. júní. Ráðgert er að skipið verði svo aftur í Reykjavík dagana 6. til 11. ágúst í lok leiðangursins.

Joides Resolution var upphaflega smíðað árið 1978 til olíuborana en var sex árum síðar breytt í rannsóknarskip. Það er um 9.700 tonn að þyngd, 143 metra langt og borturninn ofan á því slagar upp í hæð Hallgrímskirkjuturns, nær upp í 62 metra hæð. Það getur borað allt að 2.100 metra djúpar holur í berggrunninn á allt að 5.800 metra hafsdýpi.

Skipið þjónar fjölþjóðlegu vísindasamstarfi á sviði hafsbotnsrannsókna, The International Ocean Discovery Program, IODP, og er rekstur þess kostaður af 23 þátttökuþjóðum. Jarðvísindadeild Texas-háskóla heldur utan um rekstur skipsins.

Deila: