Verðmæti útfluttra sjávarafurða jókst um 53,5% í apríl

158
Deila:

Verðmæti vöruútflutnings í apríl 2021 jókst um 14,1 milljarð króna, eða um 29,8%, frá apríl 2020, úr 47,3 milljörðum króna í 61,5 milljarða. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 9,5 milljarða (53,5%), munar þar mestu um aukið verðmæti loðnu. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 2,6 milljarða króna eða 9,6% samanborið við apríl 2020 og munar þar mestu um aukið útflutningsverðmæti áls. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá maí 2020 til apríl 2021, var 648,7 milljarðar króna og hækkaði um 34,3 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 5,6% á gengi hvors árs.. Iðnaðarvörur voru 47,5% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánaði og var verðmæti þeirra 1,5% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 43,4% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 9,4% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 6,2 milljarða, eða 23,7%, á sama tímabili.

Deila: