Tæp 100 tonn eftir tvo daga á veiðum

94
Deila:

Ísfisktogarinn Viðey RE er nú í Reykjavík. Áformuð brottför er í kvöld en í fyrstu veiðiferðinni eftir Sjómannadaginn var skipið með tæp 100 tonn af fiski eftir aðeins tvo sólarhringa á veiðum.

,,Við vorum í grenndinni við Halann á Vestfjarðamiðum. Aflinn var svo til eingöngu þorskur og sáralítið var af öðrum tegundum. Ufsi sást varla og ýsan virðist vera hætt að flækjast fyrir. Því miður náðum við ekki nema tveimur sólarhringum á veiðum að þessu sinni. Það stafar af því að öll skipin voru í höfn á Sjómannadeginum og nú þarf að stemma af landanir og þarfir vinnslunnar,” segir Jóhannes Ellert Eiríksson (Elli), skipstjóri á Viðey í samtali á heimasíðu Brims..

Að sögn Ella virðist ástandið lofa góðu. Aflabrögð voru góð fyrir Sjómannadaginn og Elli er ánægður með ástand þorsksins á Vestfjarðamiðum. Meðalvigtin í veiðiferðinni var rúm þrjú kíló.

Undafarin sumur hafa ísfisktogarar Brims verið að veiðum fyrir norðan land og hefur stórum hluta aflans verið landað á Sauðárkróki. Elli segist ekki vita hvernig málum verður háttað í sumar en það ráðist af því hvernig fiskurinn hagi sér. Undanfarin sumur hafa t.d. Halamið verið steindauð á meðan góður afli hafi fengist austar.

Deila: