Nanna Ósk til Sjávarklasans

214
Deila:

Nanna Ósk Jónsdóttir hefur verið ráðin rekstrarstjóri Húss sjávarklasans. Nanna Ósk mun sinna daglegri stjórnun Húss sjávarklasans og hafa yfirumsjón með öllum nýsköpunarviðburðum. Nanna Ósk mun einnig hafa með höndum kynningu á Húsi sjávarklasans fyrir þá erlendu aðila sem áhuga hafa á að setja upp svipaða starfsemi erlendis.  Nanna Ósk er viðskiptafræðingur að mennt og frumkvöðull á sviði danslista og stofnað fyrirtæki á því sviði. Hún hefur einnig víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Nanna Ósk hefur starfað sem framkvæmdastjóri fyrir Félag viðskipta- og hagfræðinga, sinnt markaðsmálum hjá Morgunblaðinu ásamt fleiru. „Við bjóðum Nönnu Ósk velkomna til starfa í Hús sjávarklasans og hlökkum til að sjá hana koma með nýjan ryþma í nýsköpunarstarfið,“ segir í frétt frá Sjávarklasanum.

Deila: