Meira af makríl innan landhelgi en í fyrra

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson er komið í höfn eftir að hafa lokið þátttöku í árlegum uppsjávarvistkerfisleiðangri í Norðurhöfum að sumarlagi (IESSNS, International Ecosystem Summer Survey in the Nordic Seas) sem hófst 5. júlí. Í leiðangrinum var farið í kringum landið. Það voru teknar 64 togstöðvar og sigldar voru um 4300 sjómílur eða 8 þúsund km. Þá voru gerðar sjómælingar og teknir átuháfar á flestum togstöðvum.
Í leiðangrinum var rannsökuð útbreiðsla og þéttleiki makríls, síldar og kolmunna í íslenskri landhelgi að undanskildum suðaustur hluta hennar sem Færeyingar og Norðmenn rannsökuðu. Bráðbirgða niðurstöður sýna að magn makríls í íslenskri landhelgi er meira en sumarið 2020 en mun minna en áratuginn þar á undan. Makríll hefur áberandi meiri útbreiðslu fyrir austan landið en sumarið 2020 en þéttleikinn er lítill.

Líkt og undanfarin ár veiddist norsk-íslensk vorgotssíld á flestum togstöðvum fyrir norðan og austan landið og íslensk sumargotssíld veiddist á landgrunninu fyrir sunnan og vestan landið. 0-ára kolmunni veiddist við landgrunnsbrúnina fyrir sunnan og vestan landið sem gerðist síðast í þessum leiðangri sumarið 2011. Lítið mældist af kynþroska kolmunna. Hrognkelsi voru með mesta útbreiðslu allra tegunda og veiddust á 59 af 64 stöðum. Í leiðangrinum voru merkt alls 451 hrognkelsi.
Gögn frá skipunum fimm sem taka þátt í leiðangrinum verða tekin saman og greind upp úr miðjum ágúst og niðurstöður þeirrar vinnu síðan kynntar í lok ágúst.