15 tonna umframafli í viku 14

92
Deila:

Leyfi til strandveiða hafa verið gefin út til 688 báta og var landaður afli strandveiðibáta í fimmtudaginn 12. ágúst samtals 11.307.531 kg., sem er 88,06% af þeim heimildum (12.271 tonn) sem úthlutað er til strandveiða á fiskveiðiárinu 2020/2021. Þar af hefur verið landað þorski 10.383.143 kg. eða 92,95% af þeim þorskheimildum (11.171.000) sem úthlutað er.

Á strandveiðum má hver bátur landa að hámarki 650 kg. af slægðum afla í þorskígildum talið í hverri veiðiferð. Undantekning er þó ef ufsa er landað sem strandveiðiafla í verkefnasjóð, sbr. 4. tölul. 5. gr. um reglugerðar um strandveiðar, en þá reiknast ufsaaflinn ekki til strandveiðiafla.

Í 14. viku strandveiða frá 2. ágúst – 5. ágúst lönduðu 284 skip afla umfram leyfilegan heildarafla í veiðiferð, samtals 14.876 kg. Meðfylgjandi mynd sýnir yfirlit yfir umframafla í fjórtándu viku. Bláu súlurnar sýna þau 22 skip sem lönduðu mestum afla umfram leyfilegan heildarafla í veiðiferð. Kökuritið sýnir umframafla eftir svæðum og er mestur umframafli á svæði A (sem jafnframt er stærsta svæðið) eða 49.232 kg. í þorskígildum talið.

Láréttu súlurnar sýna heildarmagn umframafla fyrir hvern löndunardag og var umframafli mestur fimmtudaginn 4. ágúst 5.302 kg.

Fiskistofa áréttar að skipstjóri ber ábyrgð á því að skráning á hafnarvog sé rétt og ufsi sem ekki er merktur sem strandveiðiafli í verkefnasjóð reiknast eins og annar bolfiskur. Gögn sem Fiskistofa birtir byggja á fyrirliggjandi aflaskráningu á hafnarvog. Framangreindar upplýsingar eru birtar með þeim fyrirvara að skráning á hafnarvog sé lokið. 

Deila: