163 tonn í umframafla á strandveiðunum

106
Deila:

Strandveiðitímabil ársins 2021 var frá 1. maí til 18. ágúst 2021. Alls var úthlutað 12.271.000 kg. af veiðiheimildum í þorskígildum talið., þar af voru 11.171.000 kg. af þorski. Strandveiðileyfi voru gefin út á 688 skip og af þeim héldu 672 til veiða á tímabilinu. Heildarafli strandveiða í ár var  12.170.446 kg. í þorskígildum, og af því var 11.159.275 kg. af þorski sem er 99,9% af úthlutuðum þorskheimildum

Á strandveiðum má hver bátur landa að hámarki 650 kg. af slægðum afla í þorskígildum talið í hverri veiðiferð. Meðfylgjandi mynd sýnir yfirlit yfir umframafla yfir allt strandveiðitímabilið. Alls var landað 163.438 kg. í þíg. talið af umframafla. Taflan sýnir þau 30 skip sem lönduðu mestum umframafla á tímabilinu en alls voru 550 skip sem lönduðu umfram leyfilegt magn. Kökuritið sýnir umframafla eftir svæðum og er mestur umframafli á svæði A (sem jafnframt er stærsta svæðið) eða 95.189.232 kg.

Láréttu súlurnar sýna heildarmagn umframafla fyrir hvern löndunardag og var mestum umframafla landað á þriðjudögum.

Deila: