Verð á þorski hækkar

185
Deila:

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS og VM) og útvegsmanna (SFS og LS), sem haldinn var 3. september 2021, voru ákveðnar breytingar á viðmiðunarverði í þorski, ýsu, ufsa og karfa. Ákvörðunin byggir á ákvæði í kjarasamning og gildir um afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila.  
Slægður þorskur hækkar um 5,6%
Óslægður þorskur hækkar um 13,2%
Slægð ýsa lækkar um 8,5%
Óslægð ýsa hækkar um 5,2%
Slægður og óslægður ufsi lækkar um 2,3%
Karfi helst óbreyttur

Deila: