Hafsins kalda hjarta!

226
Deila:

Það er velþekkt staðreynd að hlýr sjór, Golfstraumurinn, flæðir norður eftir í kringum Ísland og Færeyjar. Fyrir norðan kólnar straumurinn og sekkur og flæðir til baka ískaldur í neðri lögum sjávarins. Í nýrri grein færeyskra vísindamanna er sýnt fram á hinn svokallaði Noregshafsstraumur stýrir miklum breytingum frá mánuði til mánaðar í þessu mikilvæga „hafsins kalda hjarta“ Straumurinn er risavaxin bylgja af köldum sjó sem skríður suður rangsælis norðan við Færeyjar.

Breytingarnar hafa í för með sér skilin milli hlýsjávar að ofan og kaldsjávar neðar geta á skömmum tíma færst nokkur hundruð metra upp og niður. Skilin geta verið frá 200 metrum niður á um 600 metra. Í þessi hitaskil safnast gífurlegur lífmassi svo sem áta, rækja, laxsíld, kolmunni, grálúða og svo framvegis. Lífmassinn færist því upp og niður með skilunum.
Um þetta er fjallað í sérriti tímaritsins Frontiers in Marine Science um lífríki hafsins, og hana má lesa  her.

Deila: