Nýu skipin með mest af makríl

Makrílvertíðin hefur verið erfið í sumar. Lítið af makríl innan landhelgi og langt að sækja hann út í Síldarsmuguna. Þá hefur veiðin verið óstöðug. Annað árið í röð hefur enginn veiðanlegur makríll gengið á grunnslóð og smábátar því engar veiðar stundað.
20 stærri uppsjávarveiðiskip hafa landað afla í sumar. Kvótinn er 156.946 tonn. Veiðin var í gær komin í 115.104 tonn samkvæmt aflastöðulista Fiskistofu. Því eru enn óveidd ríflega 40.000 tonn. Ekki liggur en fyrir hve mikið verður óveitt í lok vertíðar, en 22.000 tonn voru flutt frá síðasta ári yfir á þetta.
Tvö skip eru skráð með afla yfir 8.000 tonn. Það eru tvö nýjustu og stærstu skip flotans, Vilhelm Þorsteinsson EA með 8.292 tonn og Börkur NK með 8.267 tonn. Næst kemur Jón Kjartansson SU með 7.474 tonn og þá Víkingur AK með 7.400 tonn, Beitir NK er með 6.843 tonn, Aðalsteinn Jónsson SU er með 6.820 tonn, Venus NS er með 6.541 tonn, Ísleifur VE er með 5.941 tonn, Hoffell SU er með 5.730 tonn, Sigurður VE er með 5.465 tonn, Kap VE er með 5.427 tonn, Bjarni Ólafsson AK er með 5.345 tonn, Ásgrímur Halldórsson SF er með 5.255 tonn,Guðrún Þorkelsdóttir er með 5.119 tonn, Huginn VE er með 4.847 tonn, Heimaey VE er með 4.692 tonn, Börkur II NK er með 4.632 tonn, Hákon EA er með 4.28 tonn, Jóna Eðvalds SF er með 4.005 tonn og Álsey VE er með 3.216 tonn.