Góða veislu gjöra skal með grillborgurum

94
Deila:

Vinnslustöðin bauð starfsliði sínu til hamborgaraveislu í hádeginu á miðvikudag sem mæltist afar vel fyrir. Lilja Björg Arngrímsdóttir sviðsstjóri mannauðs- og lögfræðisviðs var grillmeistari og naut aðstoðar Mörtu Möller.

Lilja stóð sig reyndar svo vel í hlutverkinu að yfir hana rigndi óskum um að mæta í garða við hús hér og þar í bænum um helgina og grilla ofan í heimafólk. Hver veit hvað gerist …

Lilja mætti svo á ný á vettvang um kvöldið og grillaði fyrir starfsfólk á næturvakt og þá sem voru að landa úr Kap. Ánægja kostgangara hennar var síst minni þá en í hádeginu.

Grillmeistararnir að störfum.
Deila: