Rostungur í heimsókn á Höfn

205
Deila:

Íbúum Hafnar í Hornafirði hefur að öllum líkindum brugðið í brún þegar þeir sáu stærðarinnar rostung á bryggju í bænum. Sjónarvottur sem gerði sér ferð til að skoða rostunginn gærkvöld segir í samtali við fréttastofu visir.is að nokkur fjöldi fólks hafi verið samankominn við höfnina til að berja rostunginn augum. Hann var svo horfinn af bryggjunni í morgun.

Rostungurinn virtist una sér vel á bryggjunni enda er hann þar í nokkurn tíma. Hann hefur nokkra fiska með sér en sjónarvotturinn segir óljóst hvort hann hafi komið með þá sjálfur eða þeir verið færðir honum að gjöf.

Einn rostungur sést við Ísland á tíu ára fresti

Síðustu fimm áratugi hefur einungis einn rostungur sést við Íslandsstrendur á tíu ára fresti, að jafnaði. Þetta segir í grein á Vísindavefnum.

Þá segir að rostungar hafi eitt sinn haft fasta viðveru hér á landi en margar aldir séu síðan. Ástæða þess að þeir taki sér ekki bólfestu hér á landi sé að hér sé of hlýtt og ís skorti. Rostungar virðist vera ís töluvert háðir.

Enn fremur sé ekki ólíklegt að rostungum standi ógn af okkur mönnunum en rostungurinn á Höfn virðist ekki vera mikil mannafæla.

Deila: