Fisk Seafood gefur 40 björgunarvesti
![](https://audlindin.is/wp-content/uploads/2021/09/Fisk-Seafood-vesti.jpg)
Á dögunum afhenti FISK Seafood Skagafjarðarhöfnum að gjöf tvo kassa með björgunarvestum. Kassarnir verða staðsettir annars vegar austan við Hafnarhúsið á Sauðárkróki og hins vegar við Hafnarhúsið á Hofsósi. Í hvorum kassa eru 20 björgunarvesti í mismunandi stærðum og eru þau skref í að auka öryggi þeirra sem leggja leið sína niður á höfn.
„Með þessu framtaki leggjum við áherslu á aukið öryggi barna og unglinga á höfnunum með bættu aðgengi að björgunarvestum og þætti okkur vænt um að sjá þau í notkun“ segir Stefanía Sigurðardóttir gæða- og öryggisstjóri FISK Seafood.
Dagur Baldvinsson hafnarstjóri vildi koma á framfæri þakklæti til FISK Seafood fyrir höfðinglega gjöf til Skagafjarðarhafna. „Vestin munu komu sér vel á bryggjunum og viljum við minna á að það er skylda fyrir börnin að vera í vestum meðan þau eru að veiða á bryggjunum, það er of algengt að sjá þau vestislaus. Hafnarstarfsmenn munu vera duglegir að benda krökkunum á vestin og aðstoða þau ef á þarf að halda“.