Íslenski fáninn dreginn að húni

105
Deila:

Einar H. Valsson, skipherra, dró íslenska fánann að húni á varðskipinu Freyju í fyrsta sinn fyrr í vikunni að viðstaddri áhöfn skipsins. Í kjölfarið dró Friðrik Höskuldsson, yfirstýrimaður, stafnfánann upp. Þá var bráðabirgðamerkingu komið upp með nafni skipsins þar sem ekki tókst að koma varanlegu merkingunum til Rotterdam í tæka tíð. 

Áhöfn skipsins er lögð af stað til Íslands frá Rotterdam og er gert ráð fyrir að varðskipið Freyja verði komið til Siglufjarðar á öðrum tímanum á laugardag.

Deila: