Vinnslustöðin kaupir meirihluta í Hólmaskeri í Hafnarfirði
![](https://audlindin.is/wp-content/uploads/2020/11/ýsa-á-flugi.jpg)
Vinnslustöðin hf. hefur samið um kaup á meirihluta í fiskvinnslufyrirtækinu Hólmaskeri ehf. í Hafnarfirði, með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Hólmasker er í eigu hjónanna Alberts Erlusonar og Jóhönnu Steinunnar Snorradóttur og nýverið keypti félagið rekstur Stakkholts ehf. á sama stað. Allt starfsfólk Stakkholts var ráðið til starfa hjá Hólmaskeri, um 35 manns. Starfsemin verður eftir sem áður í Hafnarfirði og megináhersla lögð áfram á ýsuvinnslu fyrir Bandaríkjamarkað.
Gangi kaupin eftir mun Hólmasker að uppistöðu kaupa ýsu á markaði til vinnslunnar auk þess að kaupa hluta af ýsu af Vinnslustöðinni og öðrum á markaðsverði.
„Mestöll ýsa sem skip Vinnslustöðvarinnar færa að landi hefur annað hvort verið seld á markaði hérlendis eða flutt úr landi í gámum. Ýsan yrði eftir kaupin að hluta flutt frá Eyjum til Hafnarfjarðar og unnin þar. Hér yrði því stuðlað að því að efla fiskvinnslu á Íslandi,“ segir í frétt frá Vinnslustöðinni.