Týr hefur lokið „störfum“

Varðskipið Týr kom úr sinni síðustu eftirlitsferð fyrir Landhelgisgæslu Íslands í gærmorgun þegar skipið lagðist að bryggju við Faxagarð í Reykjavík. Týr hefur leikið afar stórt hlutverk í sögu Landhelgisgæslunnar undanfarna áratugi.
Varðskipið Freyja hefur því formlega tekið við keflinu af Tý og fer í sína fyrstu eftirlitsferð í byrjun næstu viku.
Týr kom í fyrsta sinn til Reykjavíkur 24. mars 1975 og lagðist að Ingólfsgarði. Skipið var þá fullkomnasta skip Íslands og jafnframt það dýrasta en það kostaði um einn milljarð króna.Varðskipið fór sína fyrstu ferð til björgunar- og landhelgisgæslustarfa frá Reykjavík þann 29. mars 1975, undir stjórn Guðmundar Kjærnested , skipherra, og það kom í hlut Eiríks Bragasonar, skipherra, að stýra skipinu í lokaferðinni.
Varðskipið varð fyrir allmiklu tjóni á bol í fiskveiðideilunni við Breta árið 1976. Skipið sigldi til skipasmíðastöðvar eftir að þorskastríðinu lauk og gert var við skipið. Töluverðar breytingar voru gerðar á varðskipinu í Póllandi 1997. Sett var radarkúla á turn skipsins, þyrlupallur lengdur um 5 m og byggt yfir neðra þilfar. Smíðaðir voru stigar utan á sitt hvora síðuna. 30 tonna kjölur var settur undir skipið.
