Loðna á ferðinni

235
Deila:

Nokkur skip eru nú farin til að leita að loðnu. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóra á Berki NK, í gærmorgun en skipið var þá statt djúpt vestur á Hala í loðnuleit. Börkur hefur leitað loðnu ásamt Bjarna Ólafssyni AK síðustu daga. Hjörvar sagði að á Halanum yrðu þeir varir við loðnutorfur.

„Við erum búnir að leita á Kolbeinseyjarhryggnum, norðan við Strandagrunn og Þverálshorn og erum núna djúpt vestur á Halanum. Það er fyrst núna sem við sjáum loðnutorfur en þá bregður svo við að það er leiðindaveður. Hérna er bölvuð bræla, 25-28 metrar og sjórinn mínus ein gráða. Það á hins vegar að lægja í kvöld og þá verður einhver friður í sólarhring eða svo samkvæmt spá.

Togarafréttir greina frá því að vart verði við meira líf á svæðinu hérna og fiskur sem fæst er fullur af loðnu. Það er semsagt loðna hér á ferðinni en það er fyrst núna sem við verðum varir við einhverjar alvörulóðningar. Menn verða að vera þolinmóðir í loðnuleitinni. Þetta á allt eftir að koma og það er mikilvægt að fylgjast vel með. Loðnutorfurnar sem við sjáum hér standa djúpt en við sjáum til hvað gerist þegar veðrið batnar,“ segir Hjörvar.

Deila: