Hæst veiðigjald á flatfiski

253
Deila:

 Auglýsing um veiðigjald fyrir árið 2022 hefur verið  birt í stjórnartíðindum. Auglýsingin segir til um þá fjárhæð sem lögð er á hvert kílógramm óslægðs afla sem landað er á tímabilinu 1. janúar 2022 til 31. desember 2022.

Tæplega 20 fiskitegundir eru á listanum auk hvala og sjávargróðurs.Hæsta gjaldið bera sólkoli/þykkvalúra, 31,32 krónur á kíló. Næst hæst er gjaldið á humar, 30.63 krónur. Þetta gjald mun  líklega ekki skila miklu í sjóði ríkisins, þar sem Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að veiðar á humri verði bannaðar á næsta ári.
Af þorski skal greiða 17,74 krónur og 17,11 krónur af ýsu. Lægt er gjaldið á kolmunna, 2,15 krónur. Engin loðna er á listanum.

Greiða skal 59,442 krónur af hverri veiddri langreyði og 9.511 krónur af hverri hrefnu. Engar  hvalveiðar hafa verið stundaðar hér síðustu árin.
Þá skal greiða 594 krónur á hvert tonn klóþangs, hrossaþara og stórþara
 

Deila: