Ríflega þriðjungur karfakvótans veiddur

227
Deila:

Ríflega þriðjungur karfakvótans er nú kominn á land, þegar þriðjungur fiskveiðiársins er um það bil liðinn. Kvótinn er 30.560 tonn eftir sérstakar úthlutanir og millifærslur milli ára. Nú eru veidd 11.306 tonn og því 19.254 tonn óveidd.
Aflahæstu skipin eru Guðmundur í Nesi RE með 714 tonn og Vigri RE með 710 tonn. 10 skip til viðbótar eru komin með 300 tonn eða meira. Það eru Sólborg RE með 696 tonn, Örfirisey RE með 557 tonn. Harðbakur EA með 488 tonn, Helga María RE með 441 tonn, Breki RE með 425 tonn, Stefnir ÍS með 416 tonn, Tómas Þorvaldsson GK með 394 tonn, Viðey RE með 337 tonn, Sturla GK með 311 tonn og Björg EA með 304 tonn.

Deila: