Hættur að vinna 61 árs

„Er þetta ekki bara orðið gott? Ég sagði lengi að ég ætlaði að hætta sextugur. Nú er ég orðinn sextíu og eins. Ég hef verið meira og minna á sjó frá 1978 og ég held að sé nóg komið.”
Þetta segir Sigurður Valgeir Jóhannesson, skipstjóri á Beiti NK. Skipið kom til hafnar í Neskaupstað með rúmlega 1.000 tonn af íslenskri sumargotssíld í byrjun desember. Túrinn markaði þau tímamót að um var að ræða síðasta túr Sigurðar, sem er 61 árs.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er rætt við Sigurð Valgeir, sem hefur starfað hjá Síldarvinnslunni í 37 ár. „Nú ætla ég að fara að leika mér og sinna ýmsu sem ég hef gaman af en hef takmarkað getað sinnt til þessa. Ég hef undanfarin ár verið í grenjavinnslu á Barðsnesi og í Sandvík og nú ætla ég að hyggja að refnum af meiri alvöru. Ég hef líka sinnt trjárækt og það er mjög gefandi. Ég hef ræktað bæðu reyni og birki af fræjum og á orðið góðan lund hér uppi í fjalli. Nú get ég fengist við tráræktina af meiri alvöru en áður Svo vil ég nefna kartöfluræktina. Nú ætla ég að fara að fást við kartöflurækt af meiri metnaði en áður ásamt Óla Gunnari vini mínum. Kartöflurækt er alveg sérstakt áhugamál hjá okkur. Þá ætla ég að ferðast með konunni minni og ég veit að við munum njóta þess vel. Ef skemmtileg verkefni tengd sjónum bjóðast þá er ég alveg tilbúinn að kíkja á þau tímabundið en föstu starfi á sjónum er lokið hjá mér.”