Komu með 7.500 tonn af kolmuna

Fjögur skip eru þessa dagana að landa 7.500 tonnum af kolmuna á Neskaupstað. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar. Barði NK kom fyrstur með 1.560 tonn, Beitir NK fylgdi í kjölfarið með 1.530 tonn og svo Börkur með 2.310 tonn. Að endingu kom Vilhelm Þorsteinsson EA til hafnar með 2.100 tonn.
Fram kemur að skipin hafi komið til löndunar vegna veðurs. Þau voru að veiðum í færeyskri lögsögu.
Rætt er við Theodór Haraldsson skipstjóra á Barða í fréttinni. Þeir voru tíu daga í túrnum, sem var að sögn tíðindalítill. „Við hófum veiðar í Ræsinu suðvestur af Færeyjum og það gekk bara vel í fyrstu. Í fyrstu fengum við tvö 350 tonna hol og það var ekki lengi dregið eða í ellefu tíma. Síðan hægðist verulega á veiðinni þarna og þá hófst leit. Kastað var austan við eyjarnar en þar var ekki jafn góð veiði. Við vorum að fá 200 – 250 tonn í holi og það var dregið í eina tuttugu tíma í hvert sinn. Staðreyndin er sú að þetta virðist byrja svipað og í fyrra. Þá hófst veiðin heldur rólega en hún jókst þegar leið á janúarmánuð og var mjög góð út allan mánuðinn. Nú gerum við ráð fyrir að taka þátt í loðnuleit. Mælirinn í skipinu var kvarðaður í gær og þá erum við klárir. Það þarf að stilla alla dýptarmæla í leitarskipunum eins til þess að mælingar séu marktækar. Nú eru þrjú skip klár til leitar fyrir utan okkur. Það er hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson og veiðiskipin Polar Ammassak og Heimaey VE,” sagði Theodór.
Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóri í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, segir í fréttinni að hráefnið úr kolmunnaskipunum sé ágætt. „Vinnsla hófst strax og hráefni barst og hún gengur vel. Auk vinnslunnar er verið að skipa út 2.100 tonnum af mjöli þannig að það er nóg um að vera hjá okkur,” er haft eftir Hafþóri.