Fundu ólöglegt fiskeldi í Borgarfirði

Matvælastofnun barst ábending um ólöglegt fiskeldi í Borgarfirði. Við eftirgrennslan starfsmanna stofnunarinnar kom í ljós að fiskeldi væri viðhaft í húsnæði í Borgarfirði án rekstrar- og starfsleyfa. Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar.
„Við nánari eftirgrennslan reyndist það vera veiðifélag sem hafði flutt seiðin í húsnæðið í þeim tilgangi að ala seiðin þar uns þeim yrði sleppt í veiðiá í vor. Húsnæðið þar sem starfsemin er stunduð uppfyllir ekki skilyrði laga og reglugerða um fiskeldi auk þess sem vörnum gegn stroki er ábótavant.”
Fram kemur að málið sé til rannsóknar og um það verði upplýst að henni lokinni.
Myndin er úr safni.