Gott skot af þorski og ýsu við Garðskaga

Deila:

Vestmannaeyjatogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í vikunni að því er segir á vef Síldarvinnslunnar. Bergur landaði í Grindavík en Vestmannaey í Vestmannaeyjum. Jón Valgeirsson á Bergi segir að túrinn hafi byrjað á Pétursey og Vík. Þar hafi verið létt nudd, þorskur og smá ufsi með. Þeir hafi síðan vegna veðurs flúið vestur fyrir Garðskaga.

Þess má geta að línubátar gerðu hörkuveiði skammt úti frá Sandgerði í vikunni. Þangað voru togskipin mætt í nokkrum hóp daginn eftir.

„Þar vorum við í skjóli og lentum í ágætis skoti. Fengum bæði þorsk og ýsu. Við lönduðum síðan nánast fullfermi í Grindavík. Að löndun lokinni var haldið til Eyja. Gert er ráð fyrir að fara á sjó á ný í dag,” sagði Jón.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir að þessi túr hafi verið með rólegasta móti. „Við byrjuðum á Pétursey og Vík en færðum okkur vegna veðurs á Eldeyjarbankann. Veiðin var heldur róleg en fiskurinn sem fékkst var mjög góður. Staðreyndin er sú að vertíðarfiskurinn er ekki kominn ennþá á okkar mið. Hann er örugglega að bíða eftir loðnunni. Venjulega kemur hann rétt á undan loðnunni og við trúum því að hún sé að koma,” er haft eftir Agli.

Deila: