Kaupa stóran framleiðanda neta og kaðla

Deila:

Hampiðjan hf. hefur undirritað samning um kaup á 75,1% hlut í indverska neta- og kaðlaframleiðslufyrirtækinu Kohinoor Ropes Pvt. Ltd. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hampiðjunnar. Þar segir að fyrirtækið sé einn stærsti framleiðandi neta og kaðla á Indlandi. Hjá fyrirtækinu starfi um 700 manns. Starfsstöðvar fyrirtækisins eru þrjár.

Í heild verða starfsmenn samstæðu Hampiðjunnar um 2.700 eftir kaupin, að því er fram kemur í tilkynningunni. „Eigendur Kohinoor munu eiga áfram 24,9% hlut í fyrirtækinu en það hefur verið náinn samstarfsaðili samstæðu Hampiðjunnar um árabil.”

Fram kemur að samstæða Hampiðjunnar hafi verið einn stærsti einstaki viðskiptavinur fyrirtækisins í fyrra enda komi stór hluti snúinna kaðla sem Hampiðjan notar frá Kohinoor. Þá hefur starfarf í fiskeldistengdum vörum vaxið, sérstaklega þegar kemur að framleiðslu fiskeldiskvía.

„Kaupin á meirihlutanum í Kohinoor mun auka samkeppishæfni Hampiðjunnar og auka möguleika okkar á að vera skrefum á undan keppinautum okkar á næstu árum með þeirri hagræðingu sem hægt er ná fram á skömmum tíma. Það er mikil tilhlökkun að vinna með þessu nýja dótturfélagi í framtíðinni og við væntum mikils af þessu samstarfi á næstu árum,” er haft eftir Hirti Erlendssyni forstjóra.

Sjá nánar hér.

Deila: