Landa fullfermi annan hvern dag

Deila:

Um þessar mundir eru Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE að landa fullfermi annan hver dag að því er frá greinir á vef Síldarvinnslunnar.

Skipstjórar beggja skipa láta vel af sér. Aflinn hefur að mestu verið þorskur en einnig ýsa og koli. „Fiskurinn sem fæst er stór og góður vertíðarfiskur en mér finnst ekki vera mjög mikið af honum. Það þarf að hafa fyrir því að fá í skipið. Þetta er ekki eins og á vertíðartíma oftast áður þegar lítið þurfti að hafa fyrir að fá aflann. Það hefur gengið vel að veiða að undanförnu en fyrirhöfnin er meiri en oftast áður. Þorskurinn virðist halda sig í ríkum mæli upp við landið, það sést lítið af ufsa en ýsan er hins vegar víða. Í næsta túr verður stefnan tekin á Háfadýpið og leitað að ufsa. Við sjáum til hvað kemur út úr því,” sagði Birgir Þór Sverrisson á Vestmannaey.

Deila: