Sjávarútvegurinn skiptir Snæfellsbæ miklu máli

Deila:

Sjávarútvegur er hornsteinn atvinnulífs í Snæfellsbæ og skapar hátt í helming útsvarstekna sveitarfélagsins. Þrátt fyrir að skipum og bátum hafi fækkað hefur bæjarfélagið náð að halda í kvótann, sem skiptir miklu máli fyrir atvinnu og tekjur svæðisins. Kristinn Jónasson bæjarstjóri lýsir þó áhyggjum af áhrifum aukinna álaga á greinina, sem gætu kallað á meiri samþjöppun fyrirtækja og þannig ógnað smærri rekstraraðilum í bænum.

Strandveiðitímabilið skiptir einnig miklu máli fyrir svæðið, en þá eykst umsvifin verulega með fjölda aðkomubáta sem gera út frá höfnum í Snæfellsbæ. Kristinn nefnir sérstaklega jákvæð áhrif þess að nýir aðilar geti haslað sér völl í útgerð án gríðarlegra fjárfestinga. Hann bendir þó á mikilvægi þess að aukin úthlutun kvóta til strandveiða gangi ekki á hlut annarra sjómanna, sem hafi sjósókn að aðalatvinnu allt árið um kring.

Áformin um hækkun veiðileyfagjalda valda sveitarfélaginu einnig áhyggjum, enda hefur Kristinn ekki fengið fullnægjandi svör um hver raunveruleg áhrif þeirra verði á samfélagið í Snæfellsbæ. Nánar má lesa um málið í nýjasta tölublaði tímaritsins Ægis.

Deila: