Fiskidagurinn mikli felldur niður í ár

219
Deila:

Ákveðið hefur verið að fella niður Fiskidaginn  mikla í ár í ljósi óvissu vegna Corona faraldursins. Eins og margir vita þá hefði Fiskidagurinn mikli fagnað 20 ára afmæli í ár og undirbúningur var hafin fyrir  afmæli fjölskylduhátíðarinnar sem vera átti 7.-9. ágúst 2020.

„Í ljósi aðstæðna hefur stjórn Fiskidagsins mikla ákveðið að fresta afmælishátíðinni um eitt ár.  Saman förum við í gegnum þetta verkefni sem okkur hefur verið rétt upp í hendurnar, verum  áfram einbeitt og hlýðum þríeykinu sem vinnur ásamt sínu fólki afar gott starf. Við skulum muna að tapa aldrei gleðinni.

Við komum sterk inn að ári og þá knúsumst við og njótum samvista við fólkið okkar og gesti.

Verið velkomin á  20 ára afmæli Fiskidagsins mikla 6 .– 8. ágúst 2021.

Styrktaraðilar okkar sem eru vel á annað hundrað fá á næstu dögum bréf frá okkur þar sem við þökkum fyrir frábært samstarf liðinna ára og óskum eftir því að þeir yfirgefi okkur ekki og komi ferskir  að vanda með okkur inn í nýtt afmælisár,“ segir í frétt frá aðstandendum Fiskidagsins.

 

Deila: