Norðmenn að semja við Breta

165
Deila:

Norðmenn vonast nú til að geta lokið fríverslunarsamningi við Breta í lok þessa árs. Bretland er fjórði stærsti markaður Noregs fyrir sjávarafurðir, aðallega þorsk, ýsu, eldislax og skelfisk. Verðmæti afurða, sem til Bretlands fara er um 106 milljarðar króna á ári. Auk þess flytja Norðmenn til Bretlands töluvert af vélbúnaði og landbúnaðarafurðum eins og timbur.

Haft er eftir Iselin Nybø ráðherra verslunar og iðnaðar í Noregi að Norðmenn vilji gera nýjan fríverslunar samning þar sem núverandi viðskipti geti að mestu leyti verið óbreytt. Um sé að ræða milljarða króna virði í útflutningi og þjónustu árlega. Samningurinn geti því miður ekki komið í stað EES-samningsins og útflytjendur verði að vera viðbúnir því að mæta nýjum viðskiptahindrunum, þegar Bretland gengur úr Evrópusambandinu.

Það sé mikilsvert forgangsmál í samningaviðræðunum að Norðmenn fái að minnsta kosti jafngóðan aðgang að breska markaðnum og aðildarþjóðir ESB. Önnur markmið séu að viðskipti með sjávarafurðir verði frjáls og án tolla og takmarkana. Það sé mikilvæg breyting frá núgildandi samningi við Evrópusambandið, þar sem þjóðir utan þess þurfa að búa við ýmsa tolla og innflutningskvóta og færi tollskoðun og fleiri þætti í nútímahorf.

Þá vilja Norðmenn samninga um loftslagsmál, umhverfismál og atvinnuréttindi komi inn í samninginn.

 

Deila: