Þokkalegar veiðar og aflinn blandaður

124
Deila:

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki fyrir helgi. Aflinn um borð samsvaraði 781 tonnum upp úr sjó, þar af 265 tonnum af gullkarfa og 212 tonnum af ufsa. Aflaverðmæti eru um 238 milljónir. Heimasíða Fisk Seafood hafði samband við Guðmund Henry Stefánsson skipstjóra og spurði hann út í túrinn.

„Við fórum frá Sauðárkróki að kvöldi 9. september. Við höfum verið á veiðum frá Reykjanesgrunni og austur að Rifsbanka. Veiðarnar hafa gengið þokkalega og mjög blandaður afli. Landað verður tæplega 23.000 kössum. Veðrið var leiðinlegt fyrri hluta túrs en ágætt seinni hlutann,“ sagði Guðmundur Henry.

 

Deila: