Brim og Fagkaup skrifa undir viljayfirlýsingu

409
Deila:

Brim ásamt dótturfélögum hafa skrifað undir viljayfirlýsingu við Fagkaup sem á að tryggja heildstæð og skilvirk innkaup félaganna. Fyrirtæki Fagkaupa eru Johan Rönning, Áltak, Vatn & veitur, S.Guðjónsson, Sindri og Varma og vélaverk. Samstarfið tekur strax gildi og nær til allra þriggja starfsstöðva Brims á landinu, Reykjavík, Akranesi og Vopnafirði.

Ingólfur Steingrímsson, forstöðumaður innkaupa og rekstrareftirlits hjá Brim segir viljayfirlýsinguna mikilvæga fyrir Brim, en nú munu beiðnir til fyrirtækja Fagkaupa fara með rafrænum hætti sem eykur skilvirkni og öryggi í samskiptum félagana.

Á myndinni eru frá vinstri, Ingólfur Steingrímsson, forstöðumaður innkaupa og rekstrareftirlits hjá Brim, Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Brims. Haraldur Líndal Pétursson, forstjóri Fagkaupa og Óskar Gústavsson, viðskiptastjóri Fagkaupa.
Deila: