Tillaga að rekstrarleyfi Arctic Sea Farm til fiskeldis í Arnarfirði
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Arctic Sea Farm ehf. til sjókvíaeldis á 4.000 tonna hámarkslífmassa af frjóum laxi í Arnarfirði. Tillagan er byggð á matsskýrslu frá 2019 um eldi Arctic Sea Farm ehf. á 4.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Arnarfirði.
Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi sem heimilar allt að 4.000 tonna hámarkslífmassa af laxi á hverjum tíma. Burðarþolsmat Hafrannsóknastofnunar og áhættumat stofnunarinnar gerir ráð fyrir 20.000 tonnum af frjóum laxi í Arnarfirði.
Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 8. nóvember 2021.