Langflestir í landi

286
Deila:

Langflest fiskiskip landsmanna eru í höfn yfir áramótin. Nótaskipin fara ekki á sjó fyrr en á nýju ári og flestir togarar eru í land. Þeir mega ekki vera úti yfir jól og ´áramót nema til að sigla með aflann til löndunar erlendis, eins og tíðkaðist á árum áður. Þó er leyfilegt að ró milli jóla og áramóta og nýta nokkrar útgerðir sér það.
Hér má sjá nokkur af skipum Grindavíkinga við Miðgarð í Grindavík. Fremst er togbátur Þorbjarnar hf., Sturla, þá koma tveir af línubátum Vísis hf., Fjölnir og Sighvatur og loks togbátar Gjögurs, Áskell og Vörður.
Ljósmynd Hjörtur Gíslason.

Deila: