Ráðgjöf vegna úthafsrækju

Deila:

Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við varúðarsjónarmið, að afli úthafsrækju hvors fiskveiðiárs 2024/2025 og 2025/2026 verði ekki meiri en 4537 tonn. Ráðgjöf yfirstandandi fiskveiðiárs (2023/2024) var 5022 tonn. Þetta kemur fram á vef Hafró.

Þar segir að stofnvísitala úthafsrækju hafi lækkað frá árinu 2018 en sé yfir varúðarmörkum. Vísitala þorsks hafi verið há frá árinu 2014 og árið 2024 hafi mælst mesta magn þorsks frá upphafi.

Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar og veiðar má nálgast hér

 Forsendur ráðgjafar má finna hér. 

Deila: