Fundu 1.500 smáskilaboð á milli Þorsteins Más og Jóhannesar

Tæknimönnum á vegum héraðssaksóknara tókst á dögunum að endurheimta á annað þúsund smáskilaboð sem fóru á milli Þorsteins Más Baldvinssonar og Jóhannesar Stefánssonar, á meðan sá síðarnefndi var við störf í Namibíu. Skilaboðin draga upp allt aðra mynd en forstjórinn og aðrir talsmenn fyrirtækisins hafa reynt að mála síðustu fimm ár.
Heimildin greinir frá þessu í ítarlegri umfjöllun sem blaðið birtir í dag. Fram kemur að þessi gögn hafi nýlega fundist í tölvu sem Jóhannes afhenti héraðassaksóknara árið 2019. Tölvan hafði að sögn tekið öryggisafrit af símanum, um eða eftir þann tíma sem Jóhannes lét af störfum hjá Samherja. Þarna hafi um 1.500 SMS skilaboð komið í ljós.
„Sérfræðingum lögreglu virðist hafa orðið þetta ljóst og náð að endurheimta SMS-skilaboð sem höfðu afritast. Í þeim birtist önnur mynd af samskiptum Jóhannesar við forstjóra og aðra starfsmenn Samherja en forsvarsmenn Samherja hafa haldið fram opinberlega,” segir í umfjölluninni.
Bent er á að Þorsteinn hafi iðulega haldið því fram að hann hafi lítil sem engin afskipti eða samskipti haft við Jóhannes á meðan sá síðarnefndi stýrði útgerð togara Samherja í Namibíu. Í Heimildinni segir: „Samskiptin í raun, í raun voru takmörkuð en hann var haldinn þráhyggju varðandi að senda alveg endalaus email, sem þá í raun voru lítið lesin,“ sagði Þorsteinn í yfirheyrslu hjá héraðssaksóknara 2020. „Ég var með takmörkuð samskipti við þennan mann.“
Þorsteinn Már hefur svarað því til að hann hyggist verjast þessum ásökunum af fullum þunga.