Atvinnutekjur í fiskeldi tæp milljón

Samkvæmt tölum Hagstofunnar fengu að jafnaði um 890 einstaklingar greiddar staðgreiðsluskyldar launagreiðslur í fiskeldi í mánuði hverjum á fyrstu níu mánuðum ársins. Frá þessu er greint á vefnum Radarinn, mælaborði sjávarútvegsins. Í samantektinni kemur fram að atvinnurekjur í greininni séu að jafnaði 957 þúsund krónur á mánuði.
Bent er á að fjöldinn hafi frá 2010 nærri fimmfaldast. „Sama er upp á teningnum með staðgreiðsluskylda launasummu, þ.e. samanlagðar staðgreiðsluskyldar launagreiðslur alls launafólks innan greinarinnar, sem hér eru nefndar atvinnutekjur. Þær námu ríflega 7.600 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er hátt í níu sinnum hærri fjárhæð að raunvirði en á sama tímabili árið 2010. Vart þarf að nefna að aldrei hafa fleiri einstaklingar starfað í fiskeldi hér á landi og nú í ár. Að sama skapi hafa atvinnutekjur í greininni aldrei verið meiri.”
Í samantektinni er greint á að aðeins í þremur atvinnugreinum hafi atvinnutekjur á mann verið hærri. „Eins og áður segir er hér um samanburð að ræða á launagreiðslum þar sem ekki er tekið tillit til fjölda vinnustunda, en hlutastörf eru t.d. misalgeng á milli atvinnugreina. Eins er menntunarstig á milli atvinnugreina mishátt, sem einnig hefur áhrif á launagreiðslur. Þessar tölur gefa þó ákveðna vísbendingu um hvernig fiskeldi kemur út í samanburði við aðrar atvinnugreinar hér á landi þegar kemur að atvinnutekjum. Það skiptir máli og þá sér í lagi þegar hugað er að þeim sóknarfærum sem Íslendingar standa frammi fyrir í fiskeldi og framtíðarstefnu Íslendinga í atvinnumálum.”