Aukið útflutningsverðmæti sjávarafurða

98
Deila:

Verðmæti vöruútflutnings í mars 2021 jókst um 5 milljarða króna, eða um 8,8%, frá mars 2020, úr 56,5 milljörðum króna í 61,5 milljarða. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 1,7 milljarða (6,7%) og landbúnaðar jókst um 82,9% á milli ára. Í tölum um útflutning á landbúnaðarafurðum vegur fiskeldi langþyngst

Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 483,7 milljónir króna, eða um 1,8% samanborið við mars 2020. Þar af jókst útflutningur á lækningavörum og lyfjum um 66,6% sem er 4% af öllum iðnaðarvörum eða 1,8% af heildinni.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá apríl 2020 til mars 2021, var 634,6 milljarðar króna og hækkaði um 17,2 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 2,8% á gengi hvors árs.

Sjávarafurðir voru 42,9% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 4,3% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 19,9% á sama tímabili. Iðnaðarvörur voru 48,2% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði og var verðmæti þeirra 1,1% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan.

 

Deila: