Blautklútar í hverju togi

117
Deila:

Í Grunnslóðaleiðangri Hafrannsóknastofnunar, sem nú stendur yfir, eru stundaðar rannsóknir á flatfiskategundum, sandsíli og sæbjúgum á grunnslóð allt í kringum landið. Í ár var nýs og óskemmtilegs meðafla vart, en blautklútar, ættaðir úr skólpi þéttbýlisstaða voru algengir í togum okkar við Faxaflóa.

Blautklútar fundust í flestum togum í Grunnslóðarleiðangri við flóann en mest var magnið við Akranes og við minni Borgarfjarðar, eða tæp 2 kg við Akranes og rúmt kg í Borgarfirði. Auk blautklútanna „veiddust” ýmsar aðrar hreinlætisvörur, eins og dömubindi, eyrnapinnar, latexhanskar og umbúðir sem eiga líklega rætur að rekja til skólps. Hafrannsóknastofnun hefur ekki skráð hreinlætisvörur til „tegunda” í leiðöngrum sínum en það er upplifun leiðangursmanna að magn hreinlætisvara sé mun meira í ár en árin á undan.

Við viljum því hvetja fólk til að passa sig að henda þessum hlutum í ruslið, en ekki sturta þeim niður, því að jafnvel þó að pakkningin segi að klútarnir séu niðursturtanlegir, þýðir það ekki að þeir brotni hratt niður í náttúrunni.

Í leiðangrinum er togað með 4 m bjálkatrolli á grunnsævi.  Markmið leiðangursins er stofnmæling á flatfiskum og sandsíli. Sérstaklega er verið að reyna að fá mat á nýliðun flatfiska.  Í ár var einnig bætt við leiðangurinn togstöðvum til að fylgjast með þéttleika sæbjúgna en vonir standa til að niðurstöðurnar muni nýtast við ráðgjöf á þessum nýja nytjastofni er frá líður.

 

Deila: