Breki til veiða á ný eftir málningar- og viðhaldsstopp

235
Deila:

Togarinn Breki VE lagði úr höfn í Vestmannaeyjum fyrir helgi í fyrstu veiðiferð eftir stopp í hálfan annað mánuð. Skipið var tekið í slipp í Reykjavík og málað hátt og lágt. Þá var fjarlægt skilrúm í lest sem bætir starfsaðstæður og eykur pláss svo hægt væri að bæta við nokkrum körum af fiski. Enn fremur var kælikerfi í lest eflt og dyttað að ýmsu öðru áður en skipinu var siglt heim til Eyja fyrr í vikunni samkvæmt frá frá Vinnslustöðinni.

Iðnaðarmenn voru um borð til að græja það sem út af stóð fyrir brottför. Magnús Ríkarðsson skipstjóri var þar nærstaddur og fylgdist grannt með öllu. Hann gekk jafnframt um skipið með upplýsingamiða og kom þeim fyrir þar sem við átti. Til dæmis setti hann teikningu af neti við hlið kassa með björgunarnetinu Markúsi við skutrennu. Kassinn var að vísu rækilega merktur áður og enginn komst hjá því að vita hvað í honum byggi. Reglur eru samt reglur og skoðunarmenn voru væntanlegir um borð til að ganga úr skugga um að fyrirmælum um upplýsingarmerkingar væri framfylgt.

Maggi skipstjóri hætti ekki á að fá gult spjald fyrir að hafa ekki upplýsingamiða þar sem þeir eiga að vera. Hann er enda þekktur fyrir nákvæmni og lætur ekki hanka sig á neinum formsatriðum regluverks, hvorki í smáu né stóru.

Breki var sérlega glæsilegur á að líta við brottför í kvöldsólinni, nýmálaður, þveginn og strokinn. Markúsarnetið rækilega merkt, Maggi skipper glaðbeittur í brúnni og áhöfnin ólm að komast á miðin.

 

Deila: