Covid-19 eykur tap Eimskips

91
Deila:

Tekjur Eimskips á fyrsta fjórðungi lækkuðu umtalsvert vegna áhrifa Covid-19 faraldursins og flutningar drógust saman. Tap á rekstrinum jókst miðað við sama tímabil á síðasta ári.  Tekjur námu 161,7 milljónum evra og lækkuðu um 2,3 milljónir evra eða 1,4% frá sama ársfjórðungi 2019. Tap ársins nam 4,9 milljónum evra samanborið við 2,5 milljónir evra tap fyrir sama ársfjórðung síðasta árs. Eigið fé nam 217,0 milljónum evra í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfallið nam 41,4% en til samanburðar var eiginfjárhlutfallið 44,0% í árslok 2019.

„Fyrsta ársfjórðungs ársins 2020 verður minnst sem tímans sem COVID-19 faraldurinn braust út. Strax í upphafi árs sáum við áhrif faraldursins  á reksturinn okkar í Kína sem síðan breiddist út um starfsemina á alþjóðavísu undir lok fjórðungsins. Neyðarstjórnunarteymi Eimskips var snemma virkjað og gríðarleg vinna hefur verið lögð í að tryggja öryggi og heilsu starfsfólks, að halda flutningakeðjunni gangandi og að viðhalda góðu þjónustustigi gagnvart viðskiptavinum á þessum krefjandi tímum. Við erum mjög meðvituð um hlutverk okkar sem mikilvægs innviðafyrirtækis og við jukum upplýsingaflæði til allra hagsmunaaðila gríðarlega á þessum tíma til að upplýsa og styðja við samfellu í rekstri og þar með draga úr óvissu tengdri flutningakeðjunni,“ segir  Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips á heimasíðu fyrirtækisins.

„Magnið í siglingakerfinu okkar minnkaði vegna kólnunar í íslenska hagkerfinu, eins og við gerðum ráð fyrir, minni veiða við Ísland og Færeyjar og áhrifa COVID-19 undir lok fjórðungsins.

Magnið í flutningsmiðlun minnkaði en hins vegar er afkoman af flutningsmiðlun vel viðunandi sérstaklega ef tekið er tillit til áhrifa COVID-19. Flutningar á kældum og frystum vörum, sem er okkar helsta flutningsmiðlunarþjónusta, héldu áfram að vera tiltölulega sterkir.

Í byrjun apríl tilkynntum við um aðlaganir á gámasiglingakerfinu okkar en sú aðgerð var hluti af rekstraraðgerðum sem gripið var til vegna áhrifa faraldursins. Í tengslum við þá breytingu var leiguskipunum Goðafossi og Laxfossi skilað fyrr en áætlað var til að lækka fastan rekstrarkostnað.

Við erum farin að sjá jákvæð fjárhagsleg áhrif af hagræðingaraðgerðum síðasta árs eins og sjá má á launum og stjórnunarkostnaði sem lækkaði um 9% á milli ára. Frá upphafi þessa árs hefur stöðugildum hjá félaginu fækkað um 170 eða sem nemur 10% af heildar starfsmannafjölda. Þessi fækkun hefur náð til allra laga í fyrirtækinu, þar með talið framkvæmdastjórnar. Vegferð hagræðingar og samþættingar undanfarið ár hefur verið krefjandi fyrir okkur í framkvæmdastjórninni þá sérstaklega er snýr að fækkun starfsfólks. Þessar aðgerðir hafa hins vegar verið nauðsynlegar þegar litið er til afkomu félagsins og neikvæðrar þróunar á flutningsmagni í siglingakerfinu síðustu tvö árin. Við höfum fjárfest töluvert í sjálfvirknivæðingu og endurhönnun verkferla síðustu ár sem styður við þessar aðgerðir.

Dettifoss, annað tveggja nýsmíðaverkefna í Kína, var afhentur í apríl. Þetta er mikilvægur áfangi í átt að upphafi samstarfs Eimskips og Royal Arctic Line sem áætlað er að hefjist undir lok annars ársfjórðungs. Með samstarfinu tengist Grænland við alþjóðlegt siglingakerfi Eimskips sem skapar tækifæri og tengingar fyrir Grænlendinga inná alþjóðlega markaði. Gámasiglingakerfi félagsins verður aðlagað þegar Dettifoss hefur þjónustu og samstarfið hefst.

Frá og með fyrsta ársfjórðungi mun Eimskip birta umhverfisuppgjör ársfjórðungslega á heimasíðu sinni. Við erum ánægð að sjá jákvæða þróun í kolefnissporinu okkar eins og það er mælt á flutta gámaeiningu. Ég er einnig ánægður að sjá 15,5% minnkun í prentuðum pappír frá fjórða ársfjórðungi síðasta árs.

Við eigum enn eftir að sjá hver heildaráhrif af COVID-19 heimsfaraldrinum verða á hagkerfi heimsins, þar með talið á löndin við Norður-Atlantshaf sem er okkar heimamarkaður. Við eigum von á neikvæðum áhrifum á eftirspurn eftir flutningaþjónustu út þetta ár. Hins vegar er það mat okkar að áhrifin verði minni á flutninga á kældum og frystum vörum, sem við sérhæfum okkur í á alþjóðavettvangi.

Afkomuspá félagsins var felld úr gildi í mars og ekki er tímabært að gefa út nýja afkomuspá.

Ég er þakklátur og stoltur af starfsfólkinu okkar og því hvernig það hefur tekist á við þessar krefjandi aðstæður, sér í lagi skipverjunum okkar, starfsfólki í hafnarstarfsemi og vöruhúsum ásamt bílstjórum sem gátu ekki unnið að heiman og lögðu mikilvæg lóð á vogarskálarnar til að halda flutningakeðjunni okkar órofinni,” segir Vilhelm.

 

Deila: