Eimskip opnar afgreiðslustöð á Patreksfirði

222
Deila:

Eftir áratuga þjónustu þá hefur Nanna ehf., samstarfsaðili Eimskips, ákveðið að hætta rekstri þann 31. júlí. Eimskip mun á sama tíma taka við keflinu með flutninga til og frá sunnanverðum Vestfjörðum. Eimskip mun leggja höfuðáherslu á að viðhalda áreiðanlegri þjónustu og dreifing á svæðinu. Afgreiðslan verður á sama stað og áður Skipabakka 3 og sími áfram 456 1102. Afgreiðslutíminn verður alla virka daga frá klukkan 8 til 16 nema á föstudögum en þá lokar afgreiðslan klukkan 15.

Nýr afgreiðslustjóri Eimskips á Patreksfirði er Petrína Sigrún Helgadóttir sem við bjóðum hjartanlega velkomna til starfa hjá Eimskip. 

Helga og Sigurbjörgu eigendum Nönnu ehf. þakkar Eimskip kærlega fyrir gott og traust samstarf í gegnum árin.

Deila: