Eyjarnar halda sig fyrir austan

119
Deila:

Skip Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum hafa verið að veiða fyrir austan land að undanförnu og landað í Neskaupstað og á Eskifirði. Bergey VE landaði á þriðjudag í Neskaupstað og Vestmannaey VE á miðvikudag. Síðan landaði Bergey á ný á Eskifirði í gærmorgun. Nú liggja bæði skipin í höfn og bíða þess að óveðrið gangi yfir.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi stuttlega við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á Vestmannaey og spurði út í tíðarfarið. „Það eru búnar að vera helvítis brælur að undanförnu og erfitt tíðarfar, en það koma hlé inn á milli. Ég geri ráð fyrir að við förum út í nótt og það spáir vel næstu daga,“ segir Birgir Þór.
Ljósmynd Smári Geirsson

 

 

Deila: