Fínn afli hjá Eyjunum

92
Deila:

Bergey VE og Vestmannaey VE héldu til veiða um hádegi sl. sunnudag eftir að hafa verið formlega gefið nafn við hátíðlega athöfn. Bergey kom síðan til löndunar á miðvikudag með fullfermi og Vestmannaey var að landa svipuðum afla í gær.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi stuttlega við Jón Valgeirsson, skipstjóra á Bergey og spurði hann hvernig hefði gengið að fiska. „Það gekk vel og þetta er blandaður afli – þorskur, ýsa, ufsi og karfi. Við fengum í skipið á tæpum þremur sólarhringum og það þykir bara gott. Við og Vestmannaey vorum að veiðum á Péturseyjarbleyðunni og þar var góður fiskur en ýsan er þó ekki komin þarna í miklum mæli. Við erum hressir með veiðiferðina og hjá okkur er allt í himnalagi,“ segir Jón.

Ljósm. Egill Guðni Guðnason

Deila: