Fiskeldi hafið í Álftafirði

111
Deila:

Papey kom síðastliðinn miðvikudag með fyrsta farminn af regnbogaseiðum frá Nauteyri til þess að flytja út í fiskeldiskvíar á Álftafirði. Papeyin kom um kl. 23 og fór að dæla fyrsta skammtinum í kví. Áætlað er að setja um 160.000 seiði, sem eru um 200 gr. í kvíarnar og ala fram á haustið 2021 í sláturstærð (slögtun). Vonir standa til þess að regnbogasilungur nái um 3500 gr. þyngd haustið 2021 og helst meira ef vel gengur.

Háafell hefur fengið útgefið starfs- og rekstrarleyfi fyrir tæpum 7000 tonnum af regnbogasilung til þauledis í fiskeldiskvíum.

„Súðavíkurhreppur fagnar því að leyfi hafi fengist fyrir eldinu og gleðilegt að sjá eldið hefjast í kvíum inn á Álftafirði og óskar Háafelli velfarnaðar,“ segir í frétt á heimasíðu hreppsins.

 

Deila: