Marport skipar nýjan framkvæmdastjóra á Spáni

104
Deila:

Marport hefur skipað Francisco J. Barros (Pachi) sem framkvæmdastjóra Marport á Spáni (Vigo).

Francisco er með 15 ára reynslu í skipatækjabransanum og er með háskólagráðu í viðskiptafræði ásamt gráðu í tæknifræði með áherslu á rafeindabúnað.

Hann hóf störf fyrir Marport árið 2009 sem aðstoðarmaður og hefur síðan gegnt ýmsum stöðum innan fyrirtækisins, síðast sem stjórnandi tækniþjónustu. ,,Sá staður sem ég hef öðlast mestu þekkinguna er án efa hjá Marport. Á starfstíma mínum hef ég fengið að kynnast mismunandi hliðum starfseminnar en það hefur reynst mér vera dýrmæt reynsla og hjálpað mér að öðlast dýpri skilning á markaðnum og þörfum kúnnans. Ég horfi því björtum augum til framtíðarinnar og tel okkur vera með frábært teymi hér á Spáni,“ segir Francisco en hjá Marport Spáni starfa ellefu manns.

Marport hannar og framleiðir veiðafærastýrikerfi, veiðafæranema, dýptarmæla, straummæla og sónartækni fyrir fiskiskipaflota heimsins. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Marport: www.Marport.com

 

Deila: